Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

531. fundur 05. nóvember 2026 kl. 08:30 - 10:45 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Kjartan Páll Þórarinsson formaður
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður
  • Aldey Unnar Traustadóttir aðalmaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Ágúst Sigurður Óskarsson áheyrnarfulltrúi
    Aðalmaður: Rúnar Traustason
  • Ómar Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
  • Kristín Anna Hreinsdóttir fjármálastjóri
  • Hafrún Olgeirsdóttir stjórnsýslustjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason Sveitarstjóri
Dagskrá
Undir liðum nr. 1- 5, sat fundinn Kristín Anna Hreinsdóttir fjármálastjóri.

1.Gjaldskrár Norðurþings 2027

Málsnúmer 202610013Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja til kynningar gjaldskrár sveitarfélagsins vegna ársins 2027.
Byggðarráð vísar gjaldskrám vegna ársins 2027 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Lagt er til að gjaldskrár velferðarsviðs fyrir árið 2027 hækki um 2,5%.
Gjaldskrár velferðarsviðs eru eftirfarandi;
-Gjaldskrá leikskóla
-Gjaldskrá frístundar
-Gjaldskrá Tónlistarskóla Húsavíkur
-Gjaldskrá skólamötuneyta í Norðurþingi
-Gjaldskrá bókasafna
-Gjaldskrár íþrótta- og tómstundasviðs
-Gjaldskrár félagsþjónustu

Lagt er til að gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs fyrir árið 2027 hækki um 2,5%.
Gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs eru eftirfarandi:
-Gjaldskrá þjónustumiðstöðva Norðurþings
-Gjaldskrá gámaleigu og landleigu
-Gjaldskrá hunda og kattahalds
-Gjaldskrá kartöflugarða
-Gjaldskrá netaveiðileyfa í sjó
-Gjaldskrá slökkviliðs

Byggðarráð vísar gjaldskrám vegna ársins 2027 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

2.Álagning gjalda 2027

Málsnúmer 202611005Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til umræðu og kynningar álagning gjalda vegna ársins 2027.
Sveitarstjóri leggur fram eftirfarandi tillögu um álagningu gjalda vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.

Útsvar 14,97%

Fasteignaskattur:
A flokkur 0,450%
B flokkur 1,32%
C flokkur 1,55%

Lóðaleiga 1 1,50%
Lóðaleiga 2 2,50%

Vatnsgjald:
A flokkur 0,040%
B flokkur 0,450%
C flokkur 0,450%

Fráveitugjald:
A flokkur 0,095%
B flokkur 0,275%
C flokkur 0,275%

Sorphirðugjald: Hækki til samræmis við gjaldskrár um 2,5%.


Ágúst leggur fram breytingartillögu:
Fulltrúi M-Lista Samfélagsins leggur til við Byggðarráð að hækkanir á fasteignagjöldum Norðurþings fyrir árið 2027 verði að hámarki 2,5% (að meðaltali). Þetta taki til fasteignaskatts, lóðaleigu, fráveitugjalda, vatnsskatts og sorpgjalda.
Útsvar verði óbreytt 14,97%.

Álagningarstuðlar fasteignagjalda verði skv. eftirfarandi:

Fasteignaskattur:
A flokkur
0,4427%

B flokkur
1,2985%

C flokkur
1,5247%


Lóðaleiga 1
1,4756%

Lóðaleiga 2
2,4593%


Vatnsgjald:
A flokkur
0,3935%

B flokkur
0,4427%

C flokkur
0,4427%


Fráveitugjald:
A flokkur
0,0935%

B flokkur
0,2705%

C flokkur
0,2705%



Rökstuðningur

Það er mikilvægt að Norðurþing taki virkan þátt í sameiginlegu átaki samfélagsins að ná niður verðbólgu og skapa forsendur fyrir lægri vöxtum. Samband íslenskra sveitarfélaga f.h. sveitarfélaganna, atvinnulífið undir forystu Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin undir stjórn heildarsamtaka þeirra hafa mælt fyrir hóflegum hækkunum, að hámarki 2,5%.

Með því að hækka gjöld umfram þessi viðmið rýfur Norðurþing þá samstöðu í samfélaginu og leggur auknar byrðar á heimili og fyrirtæki sem hafa þegar tekið þátt í átakinu með hóflegum launahækkunum og aðhaldi í verðlagningu.

Norðurþing mun leggja að viðskiptavinum sínum og byrgjum að gæta hófs í gjaldskrá og verði á þjónustu. Því er mikilvægt að sveitarfélagið gangi fram með gott fordæmi og gefi skýran tón um þátttöku í þessu mikilvæga verkefni.

Hærri gjöld auka rekstrarkostnað fyrirtækja, draga úr ráðstöfunartekjum heimila og geta stuðlað að auknum verðbólguþrýstingi. Fyrirtæki hafa þegar gengið fram með góðu fordæmi og lýst yfir vilja til að halda gjaldskrám og þjónustu óbreyttum eða hækkanir verði mjög hóflegar. Íbúar Norðurþings og stéttarfélög þeirra hafa axlað ábyrgð með hóflegum kauphækkunum í þeirri trú að órofa samstaða verði um aðgerðirnar.

Aukinn kaup- og fjárfestamáttur íbúa og fyrirtækja styrkir rekstur Norðurþings hvað best.
Norðurþing hefur sjálft mikla hagsmuni af lægri verðbólgu og vöxtum, meðal annars vegna lægri fjármagnskostnaðar og bætts rekstrarumhverfis.

Sveitarfélagið á að sýna gott fordæmi, sýna aðhald í rekstri og leita hagræðingar áður en álögur á íbúa og atvinnulíf eru auknar umfram sameiginleg viðmið.

Ágúst Sigurður Óskarsson, M-Lista Samfélagsins.

Tillögu Ágústar er hafnað með atkvæðum Kjartans, Helenu og Aldeyjar.

Undirrituð óska bókað.

Fasteignamat í Norðurþingi hækkar að meðaltali um 4,2%. Breyting á álagningu á fasteignagjöld svo hækkun yrði að jafnaði 2,5% er tæknilega erfið í framkvæmd. Að auki mundi breytingin sem lögð er til skerða tekjur sveitarfélagsins með tvennum hætti, annars vegar fasteignagjöld og hins vegar framlög frá Jöfnunarsjóði.
Eigi að skerða tekjur sveitarfélagsins felur það jafnframt í sér að draga þarf úr útgjöldum frekar en orðið er. Það verður ekki gert án þess að komi til uppsagna og/eða frekari skerðingar á þjónustu.
Óbreytt álagning gjalda felur aftur á móti í sér að tekjur af fasteignagjöldum hækka um 4,2% og gerir sveitarfélaginu kleift að verja þjónustu og störf á vettvangi sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið er í samkeppni við önnur sveitarfélög um íbúa. Lykilþættir í þeirri samkeppni eru m.a. þjónusta sveitarfélagsins í samanburði við önnur.

Undirrituð eru almennt hlynnt því að leitast við að lækka álagningu fasteignagjalda en þegar tekjur hafa lækkað eins og raunin er, teljum við ekki forsendur fyrir lækkun álagningar á þessum tímapunkti.

Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Kjartan Páll Þórarinsson, Samfylkingu
Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Framsóknarflokki
Ómar Gunnarsson, Óskalista
Aldey Unnar Traustadóttir, V lista velferðar

Byggðarráð vísar álagningu gjalda til umræðu í sveitarstjórn.

3.Framkvæmdaáætlun 2027-2031

Málsnúmer 202609025Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar framkvæmdaáætlun 2027-2031.
Byggðarráð vísar framkvæmdaáætlun 2026 og 2027-2029 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

4.Áætlanir vegna ársins 2027-2030

Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur að taka umræðu um áætlanir ársins 2027-2030. Einnig liggja fyrir uppfærðar forsendur áætlana 2027-2031 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Byggðarráð vísar fjárhagsáætlun Norðurþings til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

5.Rekstur Norðurþings 2026

Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja til kynningar lykiltölur í rekstri sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.

6.Brennur og flugeldasýningar í Norðurþingi 2026-2027

Málsnúmer 202610105Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur að veita umsögn um leyfi fyrir brennum og flugeldasýningum í Norðurþingi um næstu áramót og á þrettándanum.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn fyrir brennum og flugeldasýningum á áramótum og Þrettándanum. Ráðið felur sveitarstjóra að undirrita umsóknir þar um.

7.Erindi frá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs vegna gjaldskrárbreytinga 2027

Málsnúmer 202610119Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs vegna gjaldskrárbreytinga 2027.
Byggðarráð beinir því til Hitaveitu Öxafjarðarhéraðs að gjaldskrá hækki einungis um 2,5% á árinu 2027 til samræmis við áherslur Norðurþings vegna gjaldskrár hækkana á árinu 2027.

Ómar vék af fundi undir þessum lið.

8.Tillaga um ríkissáttasemjara sem opinberir vinnuveitendur og KÍ samþykktu þann 31.október 2026

Málsnúmer 202611001Vakta málsnúmer

Til framkvæmdastjóra sveitarfélaga

Meðfylgjandi er tillaga ríkissáttasemjara sem opinberir vinnuveitendur og KÍ samþykktu þann 31. október 2026 um framhald virðismatsvegferðar.

Niðurstaðan felur í sér að endurskoðun á forsendum virðismatsvegferðar KÍ, Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkisins verði frestað til 15. mars 2027, þar sem fyrirhuguðu bráðabirgða- og áfangamati er ekki lokið. Áfram verður unnið af fullum þunga að verkefninu.
Lagt fram til kynningar.

9.Norðurþing 20 ára

Málsnúmer 202608142Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur uppfært minnisblað fjölmenningarfulltrúa um afmælistónleika Norðurþings, ásamt nýrri tillögu Ísaks Más að framkvæmd og kostnaðaráætlun. Óskað er eftir ákvörðun um framhald verkefnisins og aukið fjármagn.
Byggðarráð samþykkir að auka fjármagn til viðburðana samkvæmt meðfylgjandi tillögu og verður kostnaður vegna tónleikanna um 1.650.000 kr.

Fyrirhugaðar dagsetningar eru:
24. nóvember 2026 Skólahúsið á Kópaskeri
25. nóvember 2026 Hnitbjörg á Raufarhöfn
26. nóvember 2026 Fosshótel Húsavík

10.Ágóðahlutagreiðsla EBÍ 2026

Málsnúmer 202611002Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá framkvæmdastjóra EBÍ þar sem tilkynnt er um ákvörðun stjórnar að gera hlé á útgreiðslu til aðildarsveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 2026-2030

Málsnúmer 202609096Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 129. fundar svæðisráðs Norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Fundurinn fór fram 14. október s.l.
Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerðir SSNE 2026

Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 86. fundar stjórnar SSNE sem haldinn var 13. október sl.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir Samtaka Sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 202504075Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 99. fundi þann 24. ágúst, 100. fundi þann 21. september og 101. fundi þann 2. október sl.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:45.