Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Foreldrakönnun grunnskóla 2025
Málsnúmer 202503102Vakta málsnúmer
Foreldrakönnun Skólapúlsins 2025 í Borgarhólsskóla er lögð fram til kynningar.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs, í samráði við skólastjóra, að kynna viðbrögð við foreldrakönnuninni í heimsókn fjölskylduráðs í Borgarhólsskóla í haust.
2.Starfsmannakönnun Borgarhólsskóla 2025
Málsnúmer 202504082Vakta málsnúmer
Starfsmannakönnun Borgarhólsskóla er lögð fram til kynningar.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs, í samráði við skólastjóra, að kynna viðbrögð við starfsmannakönnuninni í heimsókn fjölskylduráðs í Borgarhólsskóla í haust.
3.Áhrif kjarasamninga við K.Í.á fjárhag Norðurþings.
Málsnúmer 202503039Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar hagræðingartilllögur stjórnenda á velferðarsviði.
Fjölskylduráð heldur áfram umfjöllun um hagræðingartillögur á næsta fundi ráðsins.
4.Starfsmannkönnun Grænuvalla 2025
Málsnúmer 202504072Vakta málsnúmer
Starfsmannakönnun Grænuvalla er lögð fram til kynningar.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs, í samráði við skólastjóra, að kynna viðbrögð við starfsmannakönnuninni í heimsókn fjölskylduráðs í Leikskólann Grænuvelli í haust.
5.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2025
Málsnúmer 202504103Vakta málsnúmer
Egill Bjarnason sækir um styrk að upphæð 75.000 kr. í lista- og menningarsjóð Norðurþings vegna tónleika með Húsvíkingnum Axel Flóvent sem fara fram í Skúlagarði þann 16. maí. Styrkurinn verður m.a. nýttur í að auglýsa viðburðinn og utanumhald við miðasölu.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja verkefnið um 55.000 kr.
6.Erindi frá elsta árgangi Grænuvalla
Málsnúmer 202505014Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá elsta árgangi á Leikskólanum Grænuvöllum.
Fjölskylduráð gleðst yfir framtakinu og samþykkir að loka götunni samkvæmt beiðni svo börn í elsta árgangi Leikskólans Grænuvalla geti málað listaverk á götuna.
Fundi slitið - kl. 11:15.
Gunnur Árnadóttir (í fjarfundi), skólastjóri Grunnskólans á Raufarhöfn, Guðni Bragason, skólastjóri Tónlistarskólans á Húsavík, Hrund Ásgeirsdóttir (í fjarfundi), skólastjóri Öxarfjarðarskóla, Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálastjóri, og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, yfirsálfræðingur skólaþjónustu, sátu fundinn undir lið 3.
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, skólastjóri Leikskólans Grænuvalla, sat fundinn undir liðum 3-4.
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sat fundinn undir lið 3.
Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi sat fundinn undir lið 5.
Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir sat fundinn í fjarfundi.