Fara í efni

Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings

16. fundur 18. maí 2012 kl. 17:00 - 19:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Soffía Helgadóttir formaður
  • Olga Gísladóttir aðalmaður
  • Huld Hafliðadóttir aðalmaður
  • Huld Aðalbjarnardóttir Fræðslu- og menningarfulltrúi
  • Sigurður Aðalgeirsson starfsmaður í stjórnsýslu
  • Hilmar Dúi Björgvinsson varamaður
Fundargerð ritaði: Huld Aðalbjarnardóttir Fræðslu- og menningarfulltrúi
Dagskrá

1.Frístundaheimili

Málsnúmer 201104111Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindi tómstunda- og æskulýðsfulltrúa varðandi tilfærslu Skólasels Borgarhólsskóla frá fræðslusviði yfir á æskulýðs- og tómstundarsvið og verði skilgreint sem frístundastarf í Túni og yrði breytt í Frístundaheimilið Tún. Starfið í Skólaselinu fellur vel að núverandi starfsemi í Túni og meiri möguleikar á að þróa starfið enn frekar innan málaflokksins. Fræðslu- og menningarnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt til reynslu í eitt ár.

2.Fundargerð aðalfundar Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, skýrsla sjórnar 2012

Málsnúmer 201205001Vakta málsnúmer

Fundargerð aðalfundar Menningarmiðstöðvar Þingeyinga lögð fram til kynningar.

3.Skólaþjónusta Norðurþings - endurmenntunarnámskeði fyrir kennara 2012 og þróunarverkefni.

Málsnúmer 201205052Vakta málsnúmer

Sigurður Aðalgeirsson grunnskólafulltrúi kynnti áætlun fyrir endurmenntunarnámskeið kennara 2012 og þróunarverkefni á vegum skólaþjónustu Norðurþings.

4.Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Úttektir á leik- og grunnskólum

Málsnúmer 201112032Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarnefnd fór yfir drögin að skýrslunni og sendi Attentus athugasemdir sínar.

Fundi slitið - kl. 19:00.