Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Erlu Rögnvaldsdóttur vegna Gistiheimilisins Sigtúns ehf.

Málsnúmer 201205003

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 44. fundur - 03.05.2012

Fyrir bæjarráði liggur til afgreiðslu ósk Sýslumannsins á Húsavík um umsögn vegna leyfisveitingu til handa Erlu Rögnvaldsdóttir v/Gistiheimilisins Sigtún ehf. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 92. fundur - 09.05.2012

Óskað er umsagnar um leyfi til sölu gistingar í Sigtúni að Túngötu 13. Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu leigð út til gistingar þau rými sem til þess eru ætlið samkvæmt samþykktum aðaluppdráttum.