Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni v/Gistiheimilis Húsavíkur, Höfða 24b, Húsavík

Málsnúmer 201205049

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 46. fundur - 24.05.2012

Fyrir bæjarráði liggur ósk Sýslumannsins á Húsavík um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni v/Gistiheimilis Húsavíkur að Höfða 24b á Húsavík. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 93. fundur - 14.06.2012

Óskað er eftir umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni vegna reksturs hótels að Höfða 24b á Húsavík. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa jákvæða umsögn um erindið þegar fullnægjandi öryggisúttekt hefur farið fram.