Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Ingólfi Hjaltalín fyrir Vísi gistiheimili

Málsnúmer 201303044

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 102. fundur - 20.03.2013

Óskað er eftir umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis til sölu gistingar að Garðarsbraut 14. Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið.

Bæjarráð Norðurþings - 70. fundur - 21.03.2013

Fyrir bæjarráði liggur frá Sýslumanninum á Húsavík beiðni um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Ingólfi Hjaltalín f.h. Vísis hf., um endurnýjun á rekstrarleyfi til sölu gistingar á Vísir gistiheimili að Garðarsbraut 14, 640 Húsavík. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um leyfisveitinguna fjalla geri slíkt hið sama.