Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Magneu Magnúsdóttur, Raufarhöfn

Málsnúmer 201307025

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 107. fundur - 17.07.2013

Óskað er umsagnar um endurnýjun rekstrarleyfis Magneu Magnúsdóttur til sölu gistingar að Víkurbraut 18 á Raufarhöfn. Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu leigð út til gistingar þau rými sem til þess eru ætluð skv. samþykktum teikningum.

Bæjarráð Norðurþings - 78. fundur - 19.07.2013

Fyrir bæjarráði liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Húsavík vegna endurnýjunar á leyfi til handa Magneu Magnúsdóttir á Raufarhöfn. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.