Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Axel Yngvasyni vegna Áin gistihús

Málsnúmer 201405026

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 117. fundur - 14.05.2014

Óskað er eftir umsögn um leyfi til sölu gistingar í fyrirhuguðu húsi á skipulögðu svæði við Krossdal. Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um sölu gistingar á viðkomandi lóð, enda standist húsnæði ákvæði reglugerða þar að lútandi.

Bæjarráð Norðurþings - 106. fundur - 15.05.2014

Fyrir bæjarráði liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Húsavík vegna leyfisveitingar til handa Axel Yngvasyni á nýju rekstrarleyfi til sölu gistinga og/eða veitingu veitinga í nýju gistihúsi sem verið er að setja niður og mun bera nafnið Áin gistihús. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um leyfisveitinguna fjalla geri slíkt hið sama.