Fara í efni

04 511 Tónlistarskóli Húsavíkur fjárhagsáætlun 2015

Málsnúmer 201411041

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 42. fundur - 19.11.2014

Í forföllum skólastjóra gerði fræðslu- og menningarfulltrúi grein fyrir fjárhagsáætlun vegna ársins 2015.

Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 44. fundur - 10.12.2014

Fulltrúar Tónlistarskóla Húsavíkur, Árni Sigurbjarnarson skólastjóri og Soffía B. Sverrisdóttir, fulltrúi Heiltóns mættu á fundinn.

Árni gerði grein fyrir fjárhagsáætlun skólans vegna ársins 2015 og áhrifum nýs kjarasamnings FT. Bæjarráð hefur samþykkt viðbót við fjárhagsramma fræðslusviðs kr. 2.000.000. Kostnaðarhækkun vegna kjarasamnings FT umfram áður samþykkta áætlun er kr. 2.200.000. Viðbótarframlag til fræðslumála rennur til Tónlistarskóla Húsavíkur vegna aukins kostnaðar vegna kjarasamnings. Skólastjóra falið að mæta þeim 200.000 sem að á vantar og falið að ganga frá fjárhagsáætlun í samstarfi við fræðslu- og menningarfulltrúa.