Fara í efni

Sýslumaðurinn á Norðurland eystra, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Halldóri S. Olgeirssyni

Málsnúmer 201505042

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 128. fundur - 12.05.2015

Óskað er umsagnar um leyfi til sölu gistingar í gistiskála í flokki II á Bjarnastöðum.

Skipulags- og byggingarnefnd veitir neikvæða umsögn um sölu gistingar í umræddum skála, enda er ekki fyrir honum leyfi og engin öryggisúttekt hefur farið fram.

Bæjarráð Norðurþings - 139. fundur - 13.05.2015

Fyrir bæjarráði liggur beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra vegna leyfisveitinga til handa Halldóri S Olgeirssyni f.h. Bjarnastaða Hestaferða ehf.
Bæjarráð veitir erindinu neikvæða umsögn og vísar til bókunar skipulags- og byggingarnefndar á fundi hennar 12. maí.