Fara í efni

Göngum í skólann 2019

Málsnúmer 201908052

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 39. fundur - 19.08.2019

Verkefni ÍSÍ ,,Göngum í skólann" hefst miðvikudaginn 4. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferð.

Óskað er eftir liðsinni Norðurþings til að hvetja alla skóla svæðinu til þátttöku og auðvelda foreldrum og börnum að velja virkan ferðamáta.

Einnig hvetur ÍSÍ til að tryggja að göngu- og hjólreiðastígar séu öruggir og greiðir með því að huga að hreinsun, viðhaldi og lýsingu.
Fjölskylduráð hvetur skólastjórnendur skóla Norðurþings til að taka þátt í verkefninu með formlegum hætti og virkja nemendur, foreldra og starfsfólk til þátttöku í þessu frábæra verkefni. Ráðið bendir á vefsíðuna www.gongumiskolann.is þar sem m.a. má finna hugmyndabanka varðandi verkefnið.

Fjölskylduráð hvetur framkvæmdasvið Norðurþings til að tryggja að göngu- og hjólreiðastígar séu öruggir og greiðfærir.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 43. fundur - 11.09.2019

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 73 skólar skráðu sig til leiks árið 2018.
Æskilegt er að tryggt sé að göngu- og hjólreiðastígar séu öruggir og greiðir með því að huga að hreinsun, viðhaldi og lýsingu. Jafnframt er nauðsynlegt að stuðla að því að nærumhverfi skólanna sé öruggt eftir því sem við á t.d. með því að takmarka bílaumferð við skóla, huga að merkingum við t.d. gangbrautir og tryggja öryggi vegfarenda við umferðarþungar götur.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að tryggja að göngu- og hjólreiðastígar séu greiðir og hvetur jafnframt íbúa til að snyrta runna og annan gróður. Einnig að senda ábendingar á Umhverfisstjóra þar sem úrbóta er þörf. Ráðið felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að fylgja verkefninu eftir.