Fara í efni

Ósk um samstarf - umsókn til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða aðgengi Kaldbakstjarnir

Málsnúmer 202106038

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 99. fundur - 08.06.2021

Fyrir liggur ósk frá Fuglastíg á Norðausturlandi um samstarfssamning um bætt aðgengi að fuglaskoðunarskýlinu við Kaldbakstjarnir. Fengist hefur vilyrði fyrir styrk vegna framkvæmdanna.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að útbúa samstarfssamning við Fuglastíg á Norðausturlandi og leggja fyrir ráðið.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 100. fundur - 29.06.2021

Fyrir ráðinu liggja drög að samstarfssamningi milli Norðurþings og Fuglastígs á Norðausturlandi.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög.