Fara í efni

Ósk um leigu á vigtarskúr á hafnarsvæði

Málsnúmer 202306100

Vakta málsnúmer

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 13. fundur - 29.06.2023

Arnar Sigurðsson, fyrir hönd Sjóferða Arnars ehf, óskar eftir því að taka vigtarskúr hafnarinnar, á miðhafnarsvæði, til leigu fyrir starfsemi sína.
Stjórn Hafnasjóðs hafnar erindinu.

Vigtarskúrinn er nú þegar í söluferli og verður fluttur af svæðinu.

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 18. fundur - 15.12.2023

Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur erindi frá Sjóferðum Arnars ehf. vegna áframhaldandi afnota af Hafnarstétt 35.
Stjórn Hafnasjóðs samþykkir að framlengja núverandi samkomulag við Sjóferðir Arnars ehf. að því gefnu að samþykkt verði að gagnkvæmur uppsagnarfrestur verði 1. mánuður.

Stjórn felur hafnastjóra að ganga frá samkomulaginu.

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 40. fundur - 05.02.2026

Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur erindi frá Arnari Sigurðssyni fyrir hönd Sjóferða Arnars ehf., ósk um áframhaldandi leigu á Hafnarstétt 35 (vigtarskúr).
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að uppreikna og framlengja samning við Sjóferðir Arnars ehf. um eitt ár.