Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings
Dagskrá
1.Landsréttur dómur í máli nr.664 2024
Málsnúmer 202510110Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur niðurstaða Hæstaréttar frá 21. janúar s.l. þar sem beiðni Hafnasjóðs Norðurþings um afrýjunarleyfi er hafnað.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra, í ljósi þessarar niðurstöðu, að funda með þeim aðilum sem stunda ferðir í hvalaskoðun frá Húsavík.
2.Gjaldskrá hafna Norðurþings 2026
Málsnúmer 202510097Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur gjaldskrá ársins 2026 til síðari umræðu.
Stjórnin frestar frekari umræðu um gjaldskrá til næsta fundar.
3.Ósk um leigu á vigtarskúr á hafnarsvæði
Málsnúmer 202306100Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur erindi frá Arnari Sigurðssyni fyrir hönd Sjóferða Arnars ehf., ósk um áframhaldandi leigu á Hafnarstétt 35 (vigtarskúr).
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að uppreikna og framlengja samning við Sjóferðir Arnars ehf. um eitt ár.
4.Framtíðin og íslenskar hafnir
Málsnúmer 202601052Vakta málsnúmer
Hafnasamband Íslands hefur sent til kynningar skýrsluna „Framtíðin og íslenskar hafnir“ en samantektin byggir á niðurstöðum vinnustofu Hafnasambands Íslands sem haldin var í Ólafsvík í október 2025.
Lagt fram til kynningar.
5.Fundargerðir 2025
Málsnúmer 202502006Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnarsjóðs Norðurþings liggja eftirfarandi fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands:
476. fundur frá 22.október 2025.
477. fundur frá 18.nóvember 2025.
478. fundur frá 3.desember 2025.
476. fundur frá 22.október 2025.
477. fundur frá 18.nóvember 2025.
478. fundur frá 3.desember 2025.
Lagt fram til kynningar.
6.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 202601072Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnarsjóðs Norðurþings liggur 479.fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn fór fram þann 19.janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:10.