Fara í efni

Viljayfirlýsing um lóð undir landeldisstöð á laxi í landi Bakka við Húsavík

Málsnúmer 202510041

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 506. fundur - 16.10.2025

Fyrir byggðarráði liggja drög að viljayfirlýsingu á milli Bakkavík landeldi ehf. og Norðurþings um lóð undir hugsanlega landeldisstöð Bakkavíkur landeldi ehf. á Bakka við Húsavík.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra að klára vinnu við drögin. Ráðið vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn Norðurþings - 158. fundur - 13.11.2025

Á 506. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra að klára vinnu við drögin. Ráðið vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Til máls tóku: Helena, Hjálmar og Katrín.

Fyrirliggjandi viljayfirlýsing er samþykkt samhljóða.