Samningur um notkun hafna og aðstöðu
Málsnúmer 202604093
Vakta málsnúmerStjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 43. fundur - 27.04.2026
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja tillögur að samningum um notkun á bryggjum og aðstöðu í Húsavíkurhöfn, til handa þeim aðilum sem stunda ferðatengda farþegaflutninga.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu, fundað verður með aðilum máls á fimmtudaginn nk. og þeim kynnt niðurstaða stjórnar Hafnasjóðs.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 44. fundur - 27.05.2026
Bókað á síðasta fundi: Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu, fundað verður með aðilum máls á fimmtudaginn nk. og þeim kynnt niðurstaða stjórnar Hafnasjóðs.
Fundað var með hagaðilum þann 27. maí 2026.
Fundað var með hagaðilum þann 27. maí 2026.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að hefja innheimtu farþegagjalds samkvæmt gildandi gjaldskrá hafna Norðurþings frá upphafi ferðaþjónustutímabils 2026.