Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings
Dagskrá
1.Gjaldskrá hafna Norðurþings 2026
Málsnúmer 202510097Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur gjaldskrá hafna Norðurþings vegna ársins 2026 til samþykktar.
Stjórn Hafnasjóðs samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá vegna ársins 2026 og vísar henni til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn.
2.Krafa um endurgreiðslu ofgreiddra farþegagjalda
Málsnúmer 202603029Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur krafa frá Húsavík Adventures ehf. vegna farþegagjalda að upphæð 9.698.462 kr.
Bókað var á 42. fundi stjórnar þann 1. apríl sl.: Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings hafnar kröfum félagsins og felur hafnastjóra að svara félaginu formlega í samráði við lögfræðing.
3.Krafa um endurgreiðslu ofgreiddra farþegagjalda
Málsnúmer 202603028Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur krafa frá Norðursiglingu ehf. vegna farþegagjalda að upphæð 90.634.454 kr.
Bókað var á 42. fundi stjórnar þann 1. apríl sl.: Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.
Bókað var á 42. fundi stjórnar þann 1. apríl sl.: Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings hafnar kröfum félagsins og felur hafnastjóra að svara félaginu formlega í samráði við lögfræðing.
4.Krafa um endurgreiðslu ofgreiddra farþegagjalda
Málsnúmer 202604092Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur krafa frá Gentle Giants- Hvalaferðum ehf. vegna farþegagjalda að upphæð kröfu skv. seinna tímabili (2023-2025): 27.863.806.
Bókað var á 42. fundi stjórnar þann 1. apríl sl.: Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.
Bókað var á 42. fundi stjórnar þann 1. apríl sl.: Sjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu í samráði við lögfræðinga og leggja út frá þeim leiðum sem kynntar voru á fundinum.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings hafnar kröfum félagsins og felur hafnastjóra að svara félaginu formlega í samráði við lögfræðing.
5.Samningur um notkun hafna og aðstöðu
Málsnúmer 202604093Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja tillögur að samningum um notkun á bryggjum og aðstöðu í Húsavíkurhöfn, til handa þeim aðilum sem stunda ferðatengda farþegaflutninga.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu, fundað verður með aðilum máls á fimmtudaginn nk. og þeim kynnt niðurstaða stjórnar Hafnasjóðs.
6.Staða skemmtiferðasiglinga á Íslandi; fundarboð
Málsnúmer 202604091Vakta málsnúmer
Þann 26. maí nk. munu alþjóðlegu samtökin CLIA (Cruise Lines International Association) standa fyrir morgunverðarfundi í Fantasíu, á 4. hæð Vinnustofu Kjarvals í Reykjavík.
Fundurinn er ætlaður hagaðilum í ferðaþjónustu og stjórnsýslu og verður farið yfir þau mál sem hafa verið efst á baugi í skemmtiferðasiglingum til Íslands undanfarin misseri.

Lagt fram til kynningar.
7.Minnisblað vegna virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 202604042Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur minnisblað frá Hafnasambandi Íslands vegna virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa.
Lagt fram til kynningar.
8.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 202601072Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur 481. fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn fór fram þann 17.mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:00.