Fara í efni

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings

44. fundur 27. maí 2026 kl. 16:00 - 16:30 Slökkviliðsstöð á Húsavík, Norðurgarði 5
Nefndarmenn
  • Eiður Pétursson formaður
  • Kristján Friðrik Sigurðsson varaformaður
  • Áki Hauksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
  • Katrín Sigurjónsdóttir hafnarstjóri
  • Bergur Elías Ágústsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá

1.Samningur um notkun hafna og aðstöðu

Málsnúmer 202604093Vakta málsnúmer

Bókað á síðasta fundi: Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að vinna áfram að málinu, fundað verður með aðilum máls á fimmtudaginn nk. og þeim kynnt niðurstaða stjórnar Hafnasjóðs.

Fundað var með hagaðilum þann 27. maí 2026.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að hefja innheimtu farþegagjalds samkvæmt gildandi gjaldskrá hafna Norðurþings frá upphafi ferðaþjónustutímabils 2026.

2.Samningur um leigu á dráttarbátnum Sleipni EA

Málsnúmer 202605126Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samningur um leigu á dráttarbátnum Sleipni EA frá Hafnarsamlagi Norðurlands frá 25. maí nk. til 26 ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

3.Ýmis mál vegna rekstrar og fjárfestingar

Málsnúmer 202309051Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja ýmis mál frá rekstrarstjóra hafna.
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 202601072Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur 482. fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn fór fram þann 13.apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:30.