Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

267. fundur 27. maí 2025 kl. 13:00 - 14:40 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Sigurgeir Höskuldsson formaður
  • Valdimar Halldórsson varaformaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Benedikt Þór Jakobsson Rekstrarstjóri Orkuveitu Húsavíkur
Dagskrá

1.Samfélagssjóður Orkuveitu Húsavíkur 2025

Málsnúmer 202502067Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur liggur fyrir úthlutun úr samfélagssjóði Orkuveitu Húsavíkur 2025.
Stjórn Okuveitu Húsavíkur ohf. samþykkir úthlutun úr Samfélagssjóði að upphæð 2.660.000 kr
til eftirfarandi aðila:
Raufarhafnarkirkja - kaup á rafbúnaði: 180.000 kr.
Uppbygging á skíðagöngusvæði við Reyðárhnjúk: 180.000 kr.
Rótary - Náttúruganga Jökulsárgljúfur: 150.000 kr.
Hjólafélagið 640MTB - Slóðagerð 180.000 kr.
Markþing -viðburðadagatal: 180.000 kr.
Sögunefnd Völsungs: 180.000 kr.
Píludeild Völsungs: 100.000 kr.
Hraðið miðstöð nýsköpunar - Krubbur 2026: 180.000 kr.
Skotfélag Húsavíkur: 100.000 kr.
Gjóla ehf - Raufarhöfn, Tankarnir: 180.000 kr.
Leikfélag Húsavíkur - ljósabúnaður: 180.000 kr.
Soroptimistaklúbbur Húsavík - Þú og þinn styrkur: 180.000 kr.
Björgunarsveitin Garðar - Öryggisbúnaður: 180.000 kr.
Einar Ólafsson - Hnoðri: 180.000 kr.
Film Húsavík Eurovision myndband: 150.000. kr.
Blakdeild Völsungs - landsliðsverkefni unglinga: 180.000 kr.

Stjórn Orkuveitu Húsavíkur þakkar fyrir góðar umsóknir í Samfélagssjóð félagsins.

2.Sala á húseign.

Málsnúmer 202505075Vakta málsnúmer

Fyrir stjórn Orkuveitu Húsavíkur liggur fyrir að taka ákvörðun um sölu á áhaldahúsi félagsins að Höfði 13. Um er að ræða áhaldahús OH á Húsavík sem er um 450 m2 að stærð.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. samþykkir að fela rekstrarstjóra að setja eignina í söluferli.

3.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála

Málsnúmer 202208057Vakta málsnúmer

Rekstrarstjóri fer yfir helstu mál Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. þakkar góða yfirferð rekstrarstjóra.

Fundi slitið - kl. 14:40.