Orkuveita Húsavíkur ohf
Dagskrá
1.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2026
Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer
Á 523. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð vísar lið nr. 1 í fundargerð Hverfisráðs til umfjöllunar í fjölskylduráði. Byggðarráð vísar liðum nr. 2 og 3 í fundargerð Hverfisráðs til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og liður nr. 3, einnig til Orkuveitu Húsavíkur.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur þakkar erindið og vekur athygli á að vinna er í gangi við að endurnýja fráveitu ásamt því að fækka útrásum.
2.Höfði 13. Kauptilboð
Málsnúmer 202608048Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn liggur kauptilboð í fasteign félagsins Höfða 13. Húsavík
Stjórn felur rekstrarstjóra að gera gagntilboð samkvæmt umræðum á fundinum.
3.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála
Málsnúmer 202208057Vakta málsnúmer
Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. þakkar góða kynningu rekstrarstjóra á stöðu helstu verkefna.
Fundi slitið - kl. 18:30.