Fara í efni

Afreks- og viðurkenningarsjóður Norðurþings 2026

Fjölskylduráð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Afreks- og viðurkenningarsjóði Norðurþings.

Sérstök athygli er vakin á uppfærðum reglum sjóðsins. Helstu breytingar felast í því að hægt er að sækja um ferðastyrk vegna landsliðskeppnisferða allt árið um kring og er styrkur fyrir hverja ferð að hámarki 55.000 kr.-. tvær ferðir á ári eru styrkhæfar. Staðfesting sérsambands ÍSÍ þarf að fylgja. Einnig vekjum við athygli á því að hægt er að sækja um styrk vegna ferða árið 2025 til 10.apríl 2026.

Einstaklingar eða forráðamenn ungmenna upp að 25.aldursári geta svo sótt um styrk fyrir afreksefni. Markmiðið er að ná til og styðja við einstaklinga sem standa framarlega í sinni grein, eru efnilegir og stunda sína íþróttagrein vel. Eru ekki endilega í landsliðsverkefnum eða unnið Íslandsmeistaratitla en með aukinni og markvissri þjálfun og metnaði eigi möguleikann á að ná því.

Reglur sjóðsins má finna hér.

Umsókn – Afreksefni
Umsóknarfrestur er til 10.apríl 2026

Umsókn – Ferðastyrkur
Hægt er að sækja um ferðastyrk vegna 2025 til 10.apríl 2026

Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Jón Sigurgeirsson
Verkefnastjóri á velferðarsviði Norðurþings
stefans@nordurthing.is