Ársreikningur Norðurþings og stofnana 2024
Ársreikningur Norðurþings 2024 var samþykktur í síðari umræðu í sveitarstjórn 8. maí sl. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta er jákvæð um 388 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um 232 milljónir króna.
Skuldir við lánstofnanir lækka um 172 millj.kr á milli ára í samstæðunni en engin ný lán voru tekin á árinu.
Skuldahlutfall samkvæmt reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga lækkar áfram á milli ára. Hjá samstæðunni úr 65% í 63% en hjá A hluta hækkar það úr 48% í 50%.
Handbært fé frá rekstri er 507 millj.kr í A-hluta og 914 millj.kr í samstæðunni. Handbært fé A og B hluta var 1.480 millj.kr í árslok.
Á síðasta ári var framkvæmt og fjárfest fyrir tæpan milljarð í samstæðunni en heildarfjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 722 millj.kr.
Helstu fjárfestingar ársins voru þessar: Eignasjóður samtals 490 millj.kr en m.a. verkefna voru malbikun og gatnagerðaframkvæmdir, fjárfestingar í slökkvibifreiðum, undirbúningur fyrir byggingu frístundahúsnæðis og viðhald skólahúsnæðis. Orkuveita Húsavíkur ohf . fjárfesti alls fyrir 212 millj.kr í veitukerfum og búnaði og Hafnasjóður fyrir 96 millj.kr, m.a. í flotbryggjum og stálþili fyrir Þvergarð.
Íbúafjöldi Norðurþings í árslok 2023 var 3.114 og fjölgaði um 33 frá fyrra ári.
„í heild gekk rekstur Norðurþings vel á síðasta ári og ársreikningurinn staðfestir það. Það var góður afgangur af rekstri og lækkun skuldahlutfalls sem endurspeglar ábyrga fjármálastjórn og samstillta vinnu á milli starfsfólks og samhentrar sveitarstjórnar, Það þarf samt að sýna mikið aðhald í rekstrinum á næstunni, m.a. vegna nýrra kjarasamninga og þar sem blikur eru á lofti í atvinnumálum hjá okkur“ segir Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
Ársreikningur Norðurþings