Ársreikningur Norðurþings og stofnana 2024
Ársreikningur Norðurþings 2025 var samþykktur í síðari umræðu í sveitarstjórn 30. apríl sl. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta er neikvæð um 16,3 milljónir króna en rekstrarniðurstaða A hluta er jákvæð um 8,9 millj.kr.
Skuldir við lánstofnanir lækka um 142 millj.kr á milli ára í samstæðunni en eitt óverulegt lán var tekið á árinu upp á rúmlega 25 millj.kr. vegna kaupa á íbúð. Gert hafði verið ráð fyrir lántöku upp á 300 millj.kr í fjárhagsáætlun.
Skuldahlutfall samkvæmt reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga hækkar á milli ára. Hjá samstæðunni úr 62% í 71% en hjá A hluta hækkar það úr 49% í 56%.
Handbært fé frá rekstri er 560 millj.kr í A-hluta og 793 millj.kr í samstæðunni. Handbært fé A og B hluta var 1.098 millj.kr í árslok og lækkaði um 380 millj. á milli ára .
Árið 2025 nam heildarfjárfesting samstæðunnar í varanlegum rekstrarfjármunum 976 millj.kr og voru helstu fjárfestingar ársins þessar:
Eignasjóður samtals 695 millj.kr en helstu fjárfestingar ársins voru í nýbyggingu Frístundarhúsnæðis við Borgarhólsskóla 339 millj.kr. framkvæmdir við gervigrasvöll og stúku 140 millj. kr og gatnaframkvæmdir við Ásgarðsveg á Húsavík og Rifós á Kópaskeri 65 millj kr. Orkuveita Húsavíkur ohf . fjárfesti alls fyrir 227 millj.kr í veitukerfum og búnaði.
Íbúafjöldi Norðurþings í árslok 2025 var 3.017 og fækkaði um 97 íbúa frá fyrra ári.
„Ég vil þakka sveitarstjórn fyrir samheldni og samstöðu í störfum sínum fyrir sveitarfélagið en hún skilar hér góðum ársreikningi í því árferði sem við búum við í dag í atvinnulífinu hér í sveitarfélaginu. Einnig þakka ég starfsfólki Norðurþings og stjórnendum fyrir sérstaklega góð störf á síðasta ári og sérstakar þakkir fá fjármálastjóri og starfsfólk í fjármáladeild fyrir vel unnin störf við gerð ársreikningsins.“ segir Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
Ársreikningur Norðurþings 2025
Endurskoðunarskýrsla
Ársreikningur Hafnasjóðs Norðurþings 2025