Fara í efni

Fjölskylduráð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki í lista- og menningarsjóð

Lista- og menningarsjóður Norðurþings var stofnaður af bæjarstjórn Húsavíkur á 40 ára afmæli Húsavíkurkaupstaðar.
Hlutverk sjóðsins er að efla lista- og menningarviðburði af ýmsu tagi í Norðurþingi.

Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

Hér má sjá skipulagsskrá sjóðsins og hér má kynna sér reglur um úthlutun styrkja.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram á reglulegum fundum fjölskylduráðs.

Allar nánari upplýsingar veitir Nele Beitelstein.
nele@nordurthing.is eða í síma 464 - 6100

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum þjónustugátt Norðurþings hér: Þjónustugátt Norðurþings