Fara í efni

Flokkum rétt með réttum aðferðum

Borið hefur á að margir íbúar noti þessa venjulega innkaupapoka fyrir lífræna sorpið. Þótt svo að þeir pokar séu vissulega lífrænir, brotna þeir ekki niður á sama hátt og maíspokarnir sem ætlaðir eru fyrir lífræna sorpið. Það veldur því að lífræna sorpið verður ekki nothæft til moltugerðar.

Norðurþing vill biðja íbúa að nota rétta poka þ.e. maíspokana svo hægt sé vinna úr lífræna sorpinu.

Einnig hefur nokkuð verið um að fólk losi garðúrgang í lífrænar tunnur.
Slíkur úrgangur á ekki heima þar heldur í sérstökum gámum við sorpstöðina sem tekur við laufum, grasbökkum, greinum og öðru garðefni.

Frekari upplýsingar um hvernig skal flokka, ílátaval, gjald og fleira má finna HÉR