Hreinsunardagurinn 2026
Húsavík - 20.maí
20. maí
Terra mun hafa þrjá gáma, staðsetta við Sundlaug Húsavíkur, Borgarhólsskóla og gatnamót Þverholts og Laugarholts.
Við hvetjum íbúa til að nýta sér þá.
Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar tæma gáma að hreinsunarátaki loknu eða eftir þörfum.
Hér er tillaga af svæðum sem félagasamtök geta farið eftir
Fyrirtæki og félagasamtök eru sérstaklega hvött til að kveikja neistann í starfsmönnum og félögum og taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.
Kópakser - 20.maí (Hlekkur)
Íbúar Kópaskers eru hvattir til þess að hreinsa til á lóðum og í sínu nánasta umhverfi. Ruslapoka má nálgast fyrir utan áhaldahúsið.
Óskað er eftir að ruslið sé losað í gámana í bænum. Hægt er að vera í samráði við Friðgeir og fá lánaða kerru eða að fá hann til að fjarlæga pokana ef ekki er hægt að koma þeim í gáma með öðrum leiðum.
Eigendur/forsvarsmenn fyrirtækja eru einnig sérstaklega hvattir til þess að hreinsa vel til í sínu nánasta umhverfi.
Allir eru hvattir til þess að taka þátt. Sýnum samstöðu, margar hendur vinna létt verk!
Að hreinsunarátaki loknu, milli kl. 18:00-19:00, verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykki við Áhaldahúsið.
Norðurþing býður öllum þeim sem taka þátt í hreinsunardeginum frítt í sund á Raufarhöfn frá klukkan 17:00 þann sama dag.