Staða deildarstjóra við leikskólann Grænuvelli er laus til umsóknar
Leikskólinn Grænuvellir á Húsavík auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf frá 18. ágúst 2025.
Vinnutíminn er 7:45-16:00.
Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 160 börn með aðgengi að frábæru útikennslusvæði og stutt í bæði skóg og fjöru. Í leikskólanum ríkir starfsgleði, samvinna, tillitssemi og virðing. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla og STEM. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf kennara.
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg.
• Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Stundvísi og reglusemi.
• Hreint sakavottorð.
• Góð íslensku kunnátta.
Fríðindi sem fylgja starfinu er afsláttur og forgangur barna í leikskólann auk þess fríar máltíðir.
Sótt er um á heimasíðu leikskólans, graenuvellir.karellen.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2025
Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir í síma 464-6160 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is