Ferðafélagið Norðurslóð tekur þátt í lýðheilsugöngum FÍ í september.
Á morgun, miðvikudag verður farið frá skólahúsinu á Kópaskeri kl. 18:00, gengið út að Kópaskersvita og áfram að fjárborginni við enda flugvallar og skrifað þar í gestabók.
Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf forstöðumanns. Um er að ræða 50% starf á heilsársgrundvelli.
Um nýtt starf er að ræða sem krefst stefnumótunar og frumkvæðis. Félag eldri borgara hefur verið með öflugt félagsstaf og mun félagsstarfið á vegum Norðurþings vera í samstarfi við félagið.
Þann 16. ágúst komu út skýrslur með niðurstöðum ferðavenjukönnunar 2018 meðal erlendra gesta á átta áfangastöðum um allt land. Könnunin aflaði upplýsinga um ýmsa einkennandi þætti ferðamanna á rannsóknarsvæðunum, svo sem búsetuland, ferðamáta, gistimáta og dvalarlengd, auk þess sem ástæða heimsóknar og útgjaldamynstur þeirra var skoðað.