Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
Í ár verða Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs veitt í fimmtánda sinn. Verðlaunin eru 350.000 danskar krónur
og í ár er þemað verkefni sem hvatt hafa Norðurlandabúa til að stunda meiri hreyfingu úti í náttúrunni.
„Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2009 verða veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem
á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning
á mikilvægi náttúrunnar fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði."
09.03.2009
Tilkynningar