Verkefnissamningur um rafrænt samfélag undirritaður
Í dag var undirritaður verkefnissamningur milli Byggðastofnunar annars vegar og
Aðaldælahrepps, Húsavíkurbæjar og Þingeyjarsveitar hins vegar, um byggðaverkefnið rafrænt samfélag. Um er að ræða
samstarfsverkefni sveitarfélaganna sem valið var í samkeppni stjórnvalda á síðasta ári. Heiti verkefnisins er Skjálfandi í faðmi
þekkingar – Rafrænt samfélag við Skjálfanda og eru einkunnarorð þess, Virkjum alla!. Vísa þau til megin markmiðs verkefnisins sem er
að virkja alla íbúa byggðarlagsins til að nýta sér möguleika tölvu- og upplýsingatækninnar á sem flestum sviðum hins daglega
lífs.
03.03.2004
Tilkynningar