Samtök um markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar skemmtiferðaskipa
Stofnfundur samatkanna Cruise Iceland var haldinn á Hótel Sögu fyrir skömmu og sóttu hann rúmlega 70 manns. Á fundinum voru flutt erindi um
móttöku skemmtiskipa í hinum ýmsu höfnum landsins og fram kom að sumarið 2004 verður það stærsta í komum skemmtiskipa til
landsins.
Húsavíkurhöfn er stofnaðili að samtökunum, enda það eitt af markmiðum markaðssetningaráætlunar hafnarstjórnar að auka komur
erlendra skemmtiferðaskipa hingað á næstu árum. Í því sambandi hefur höfnin m.a. unnið í samvinnu við MarkHús og sjö
aðrar hafnir í landinu að útgáfu kynningarefnis sem kynnt var útgerðaraðilum skemmtiferðaskipa í Bandaríkjunum s.l. haust.
25.02.2004
Tilkynningar