Fara í efni

Frístund - opið fyrir skráningar

Opið er fyrir skráningar í frístundarvistun á Húsavík (Tún). Um er að ræða eftirskólavistun fyrir 1-4 bekk sem starfrækt er á efri hæð íþróttahallarinnar (Grænatorgi).
Skráning fer fram inná vefsíðu Norðurþings með því að fylla út rafrænt eyðublað sem finna má hér

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn kynni sér vel helstu upplýsingar um frístundarheimilið sem lesa á á vefsvæði Túns:  https://www.nordurthing.is/tun

Starfsdagatal frístundar má finna inná vefsvæði Túns og er sérstaklega bent á opin dag í frístundarheimilinu miðvikudaginn 22.ágúst frá 14-15 (skólasettning kl 16.00). Tilvalið er fyrir foreldra og börn að kíkja á aðstöðuna og kynnast starfsfólkinu.