Fara í efni

Fjölskylduráð

250. fundur 20. október 2026 kl. 08:30 - 12:00 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Rebekka Ásgeirsdóttir formaður
  • Elísabet Anna Helgadóttir varaformaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson aðalmaður
  • Halldór Jón Gíslason aðalmaður
  • Signe Ann-Charlotte Fernholm áheyrnarfulltrúi
  • Guðni Már Kjartansson varamaður
Starfsmenn
  • Jón Höskuldsson sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
Sunna Mjöll Bjarnadóttir, forstöðuþroskaþjálfi í málefnum fatlaðra og Anna Björg Leifsdóttir, forstöðumaður í málefnum barna og fjölskyldna, sátu fundinn undir lið 1.
Hjálmar Bogi Hafliðason, Óskar Páll Davíðsson, Ágúst Þór Brynjarsson og Rúnar Þór Brynjarsson, sátu fundinn undir lið 2.
Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 2 - 4.
Ísak Már Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri HSÞ, sat fundinn undir lið 6.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 6-8.

1.Erindi frá forstöðumönnum Miðjunnar hæfingu og dagþjónustu og Borgarinnnar frístundar og skammtímadvalar

Málsnúmer 202609185Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráð liggur erindi frá forstöðumönnum Miðjunar hæfingu og dagþjónustu og Borgarinnnar frístundar og skammtímadvalar
Fjölskylduráð þakkar Sunnu Mjöll og Önnu Björgu fyrir komuna á fundinn. Ráðið vísar þeim hluta erindisins sem fjallar um aðgengi, hljóðvist, viðhald og brunavarnir til skipulags- og framkvæmdaráðs og leggur áherslu á að gerð verði áætlun um umbætur í Sólbrekku 28.
Miðjan og Borgin hafa lengi verið í húsnæði sem horft hefur verið til að sé tímabundin lausn. Mikilvægt er að finna þessari mikilvægu starfsemi varanlega staðsetningu.

2.Ósk um samtal vegna Mærudaga

Málsnúmer 202609085Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur áframhaldandi umfjöllun um erindi starfshóps Mærudaga, sem hefur óskað eftir að mæta á fund ráðsins og kynna hugmyndir sínar nánar.
Fjölskylduráð þakkar Óskari Páli, Hjálmari Boga, Ágústi Þór og Rúnari Þór fyrir komuna á fundinn. Ráðið felur fjölmenningafulltrúa að eiga samtal við hlutaðeigandi miðað við umræður á fundinum. Haldið verður áfram umræðum um Mærudaga á næstu fundum ráðsins.

3.Endurskoðun reglna lista- og menningarsjóð Norðurþings 2026

Málsnúmer 202610031Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til endurskoðunar reglur lista- og menningarsjóðs Norðurþings.
Fjölskylduráð samþykkir óbreyttar reglur lista- og menningarsjóðs Norðurþings.

4.Endurskoðun reglna fyrir listamann Norðurþings 2026

Málsnúmer 202610032Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð hefur til endurskoðunar reglur Listamanns Norðurþings.
Fjölskylduráð felur fjölmenningarfulltrúa að uppfæra reglurnar í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir ráðið að nýju.

5.Frístundastyrkir 2027

Málsnúmer 202609105Vakta málsnúmer

Á 166. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Til máls tók: Helena. Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða
Á fundi sveitarstjórnar þann 17. september var samþykkt að frístundarstyrkir verði 40 þúsund árið 2027. Gert verður ráð fyrir þeirri upphæð í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027.

6.Rekstur HSÞ - ósk um nýjan samning 2026

Málsnúmer 202610033Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá framkvæmdastjóra HSÞ þar sem hann óskar eftir því að fá að kynna starfsemi sambandsins og í framhaldi óska eftir nýjum rekstrarsamningi.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðasviði að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir ráðið að nýju.

7.Áætlanir vegna ársins 2027-2030

Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer

Á 529. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi ramma og vísar þeim til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði.
Lagt fram til kynningar.

8.Þjónustustefna Norðurþings

Málsnúmer 202305116Vakta málsnúmer

Á 529. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð heldur áfram vinnu sinni við þjónustustefnu Norðurþings samhliða fjárhagsáætlunargerð. Ráðið vísar þjónustustefnu einnig til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði. Byggðarráð stefnir að rafrænu samráði við íbúa við gerð stefnunar.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að koma ábendingum ráðsins til skila.

9.Samningur um barnaverndarþjónustu á Norðurlandi eystra

Málsnúmer 202410105Vakta málsnúmer

Drög að skiptingu kostnaðar vegna sameiginlegs reksturs sveitarfélaga á Norðurlandi eystra á barnaverndarþjónustu eru lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

10.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202610098Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.

11.Bókasafnið á Húsavík - Heimsókn fjölskylduráðs Norðurþings

Málsnúmer 202608082Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Norðurþings heimsækir bókasafnið á Húsavík til að kynna sér starfsemi, stöðu og framtíðarsýn safnsins.
Fjölskylduráð heimsótti bókasafnið á Húsavík og kynnti sér starfsemi þess. Ráðið þakkar góðar móttökur.

Fundi slitið - kl. 12:00.