Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings

113. fundur 15. janúar 2014 kl. 13:00 - 13:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Jón Grímsson formaður
  • Soffía Helgadóttir varaformaður
  • Guðlaug Gísladóttir aðalmaður
  • Dóra Fjóla Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Hauksdóttir aðalmaður
  • Gaukur Hjartarson skipul.- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Deiliskipulag iðnaðarlóðar á Bakka 2. áfangi

Málsnúmer 201312053Vakta málsnúmer

Nú er kynningu skipulagslýsingar lokið. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands Eystra.1. Umhverfisstofnun telur umfjöllun um umhverfisáhrif skipulags fullnægjandi.2. Heilbrigðiseftirlit telur að skipulags- og matslýsing taki til helstu þátta umhverfismála sem máli skipta og gerir því ekki athugasemd við lýsinguna.3. Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu, en minnir á að kynna þarf skipulagstillöguna skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga áður en sveitarstjórn samþykkir hana til auglýsingar.Nefndin telur að umsagnir um skipulagslýsingu gefi ekki tilefni til breytinga á henni. Tillaga ráðgjafa að deiliskipulagi var kynnt á opnu húsi í bæjarskrifstofunni á Húsavík mánudaginn 13. janúar s.l. skv. ákvæðum 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Engar ábendingar um breytingar komu fram á þeirri kynningu. Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti tillögu að deiliskipulagi 2. áfanga iðnaðarsvæðis á Bakka. Þar er gert ráð fyrir þremur iðnaðarlóðum á 6,6 ha svæði norðan Bakkaár og austan þjóðvegar nr. 85. Skipulagstillagan er til samræmis við skýringarmynd sem fylgdi 1. áfanga deiliskipulags á Bakka. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagstillagan verði kynnt óbreytt kv. ákvæðum 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Deiliskipulag urðunarstaðar við Kópasker

Málsnúmer 201212023Vakta málsnúmer

Þann 19. desember s.l. lauk athugasemdafresti við tillögu að breytingu aðalskipulags vegna stækkunar sorpförgunarsvæðis á Kópaskeri og tillögu að deiliskipulagi sama svæðis. Engar athugasemdir bárust innan athugasemdafrests. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagstillögurnar verði samþykktar báðar eins og þær voru kynntar. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að senda aðalskipulagsbreytinguna til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ennfremur skal skipulags- og byggingarfulltrúi senda deiliskipulagið til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

3.Breyting aðalskipulags Norðurþings vegna lagningar jarðstrengs frá Húsavík að Höfuðreiðarmúla

Málsnúmer 201309015Vakta málsnúmer

Þann 19. desember s.l. lauk athugasemdafresti við tillögu að breytingu aðalskipulags vegna lagningar jarðstrengs frá Höfuðreiðarmúla að tengivirki á Húsavík. Engar athugasemdir bárust innan athugasemdafrests. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu aðalskipulags verði samþykkt eins og hún var kynnt. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að senda aðaskipulagsbreytinguna til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Breyting á aðalskipulagi Norðurþings vegna iðnaðarlóðar á Bakka

Málsnúmer 201303042Vakta málsnúmer

Þann 19. desember s.l. lauk athugasemdafresti við tillögu að breytingu aðalskipulags vegna tilfærslu háspennumannvirkja á Bakka. Engar athugasemdir bárust innan athugasemdafrests. Hinsvegar er ósvarað umsögn Tjörneshrepps um skipulagslýsingu sem barst skipulagsfulltrúa 7. október s.l. Þar kemur fram að hreppsnefnd Tjörneshrepps telji breytinguna almennt til bóta en að rétt hefði verið að leggja háspennulínur í jörð austur fyrir heiðarbrún til að draga sem mest úr sjónmengun fyrir vegfarendur og íbúa bæjanna á Héðinshöfða. Skipulags- og byggingarnefnd tekur undir sjónarmið hreppsnefndar Tjörneshrepps að breytingin felur í sér framför í umhverfislegu tilliti frá gildandi aðalskipulagi þar sem háspennulína er tekin til jarðar austan þjóðvegar og jafnframt færð lengra frá bæjum á Héðinshöfða. Þann 6. maí 2013 barst Norðurþingi ítarlegt svar Landsnets vegna fyrirspurnar Norðurþings um kosti og galla þess að leggja jarðstrengi að Bakka í stað loftlína síðustu fjóra kílómetrana. Í því svari kemur fram að lagning 220 kV jarðstrengs sé hvorki talin tæknilega né kostnaðarlega fýsileg á þessu spennustigi. Hún kæmi eingöngu til athugunar á styttri köflum og við mjög sérstakar aðstæður s.s. í þéttri íbúðarbyggð. Á grunni þessa svars telur skipulagsnefnd ekki raunhæft að gera það að kvöð í skipulagi að háspennulínan verði tekin til jarðar mörgum kílómetrum austan við spennivirki. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu aðalskipulags verði samþykkt eins og hún var kynnt. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að senda aðalskipulagsbreytinguna til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Deiliskipulag iðnaðarlóðar á Bakka

Málsnúmer 201209005Vakta málsnúmer

Þann 19. desember s.l. lauk athugasemdafresti vegna tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga iðnaðarsvæðis á Bakka. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagstillagan verði samþykkt óbreytt. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að senda deiliskipulagið til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 áður en gildistaka þess verður auglýst.

6.Breyting aðalskipulags Norðurþings vegna ferðaþjónustu í landi Krossdals

Málsnúmer 201401050Vakta málsnúmer

Þann 7. janúar s.l. lauk athugasemdafresti vegna skipulagslýsingar fyrir breytingu aðalskipulags í landi Krossdals vegna nýs þjónustusvæðis og deiliskipulags sama svæðis. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands Eystra. 1. Skipulagsstofnun bendir á að gera þarf grein fyrir fjölda gistiskála á lóðinni og hámarksstærð þeirra.2. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra bendir á mikilvægi þess að fram komi í deiliskipulagi svæðisins áætlanir um fráveitu og þær verði í samræmi við reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp, leiðbeiningar um fráveitur og skólp sem Umhverfisstofnun hefur gefið út og Samþykkt um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra að undanteknum Húsavíkurbæ. Skipulags- og byggingarnefnd fellst á þau sjónarmið sem fram koma hér að ofan. Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti tillögu að breytingu aðalskipulags vegna fyrirhugaðrar þjónustulóðar ásamt tilheyrandi umhverfisskýrslu. Skipulagshugmyndin var kynnt á almennum fundi á opnu húsi á bæjarskrifstofu Norðurþings 13. janúar s.l. Engar athugasemdir/ábendingar komu fram á kynningarfundinum. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að aðalskipulagsbreytingu verði kynnt skv. ákvæðum skipulagslaga að fengnu samþykki Skipulagsstofnunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.

7.Deiliskipulag lóðar undir ferðaþjónustu í landi Krossdals

Málsnúmer 201312021Vakta málsnúmer

Þann 7. janúar s.l. lauk athugasemdafresti vegna skipulagslýsingar fyrir breytingu aðalskipulags í landi Krossdals vegna nýs þjónustusvæðis og deiliskipulags sama svæðis. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands Eystra. 1. Skipulagsstofnun bendir á að gera þarf grein fyrir fjölda gistiskála á lóðinni og hámarksstærð þeirra.2. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra bendir á mikilvægi þess að fram komi í deiliskipulagi svæðisins áætlanir um fráveitu og þær verði í samræmi við reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp, leiðbeiningar um fráveitur og skólp sem Umhverfisstofnun hefur gefið út og Samþykkt um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra að undanteknum Húsavíkurbæ. Skipulags- og byggingarnefnd fellst á þau sjónarmið sem fram koma hér að ofan. Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti tillögu að deiliskipulagi nýs ferðaþjónustusvæðis í landi Krossdals ásamt tilheyrandi umhverfisskýrslu. Um er að ræða 3 ha lóð þar sem ætlunin er að reisa tvo gistiskála auk þjónustuhúss fyrir tjaldsvæði. Hluti lóðarinnar er afmarkaður undir tjaldstæði og húsbílastæði. Vegtenging við þjóðveg nr. 85 verði um núverandi afleggjara að fyrrum seiðaeldisstöð. Gerð er grein fyrir fráveitumálum til samræmis við ábendingu Heilbrigðiseftirlits við skipulagslýsingu og skilmálar settir um byggingarmagn á lóð til samræmis við ábendingu Skipulagsstofnunar. Hugmynd að deiliskipulagi svæðisins var kynnt á almennum fundi á opnu húsi í bæjarskrifstofu Norðurþings þann 13. janúar s.l. Engar athugasemdir/ábendingar bárust í kjölfar fundarins. Skipulagsnefndin fer fram á að sett verði í skipulagsskilmála að litaval veggja og þaks falli að nánasta umhverfi. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan að deiliskipulagi verði kynnt skv. ákvæðum 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða tillögu að aðalskipulagsbreytingu.

8.Deiliskipulag hótellóðar Stracta

Málsnúmer 201309010Vakta málsnúmer

Fram kemur í bréfi Skipulagsstofnunar frá 12. desember s.l. að gera þurfi eftirfarandi breytingar á tillögu að breytingu aðalskipulags vegna stækkunar verslunar og þjónustusvæðis V3 áður en hún er auglýst til almennrar kynningar: 1. Breyta tölugildi flatarmáls þjónustulóðar í töflu bls. 14 í kafla 24.2. Rökstyðja nánar hvernig aðkoma að Holtahverfi batni með tilkomu nýrrar vegtengingar við þjóðveg nr. 85.3. Óska þarf umsagnar Vegagerðarinnar vegna breyttra vegtenginga við þjóðveg. Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemd við að skipulagstillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga eftir að tekið hefur verið tillit til ofangreindra athugasemda. Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti breytta tillögu að aðalskipulagsbreytingunni þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagstillagan með áorðnum breytingum verði kynnt til samræmis við ákvæði skipulagslaga. Samhliða verði auglýst tillaga að deiliskipulagi svæðisins eins og áður hefur verið ákveðið.

9.Vegagerðin óskar eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag v/tímabundinna athafnasvæða við Hringveg 1 um Jökulsá á Fjöllum

Málsnúmer 201401031Vakta málsnúmer

Vegagerðin óskar eftir heimild Norðurþings skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags vegna vinnubúða og athafnasvæðis framkvæmdaaðila við Hringveg við Jökulsá á Fjöllum. Skipulags- og byggingarnefnd heimilar Vegagerðinni að gera tillögu að deiliskipulagi vinnubúða og athafnasvæðis til síðari umfjöllunar í nefndinni.

10.Kári Magnússon f.h. Fasteigna ríkissjóðs, sækir um leyfi til að byggja lyftustokk við Framhaldsskólann á Húsavík

Málsnúmer 201312063Vakta málsnúmer

Óskað er eftir samþykki fyrir byggingu lyftustokks við Framhaldsskólann á Húsavík. Byggingarefni er steinsteypa, einangrað að utan og múrhúðað. Erindið var samþykkt af byggingarfulltrúa 14. janúar 2014.

11.Guðmundur H. Jóhannesson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Stakkholti 9 eftir breyttum teikningum

Málsnúmer 201401001Vakta málsnúmer

Óskað er eftir samþykki fyrir breyttum frágangi húss ofan á þegar steyptan grunn að Stakkholti 9. Erindið var samþykkt af byggingarfulltrúa 7. janúar s.l.

12.Sveinn Hreinsson f.h. Norðurþings sækir um leyfi til að breyta gluggum á fjölbýlishúsinu að Garðarsbraut 67-71

Málsnúmer 201312086Vakta málsnúmer

Óskað er eftir leyfi til að breikka opnanleg fög og breyta svalahandriðum að Garðarsbraut 67-71. Erindið var samþykkt af byggingarfulltrúa 10. janúar s.l.

13.Framsýn stéttarfélag, ósk um leyfi til að setja nýjan glugga á húsið að Garðarsbr. 26, Húsavík

Málsnúmer 201312060Vakta málsnúmer

Óskað er eftir leyfi til setja glugga á neðri hæð Garðarsbrautar 26. Erindið var samþykkt af byggingarfulltrúa 14. janúar 2014.

Fundi slitið - kl. 13:00.