Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdaráð

216. fundur 29. apríl 2025 kl. 13:00 - 15:00 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Soffía Gísladóttir formaður
  • Rebekka Ásgeirsdóttir varaformaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson aðalmaður
  • Þorsteinn Snævar Benediktsson aðalmaður
  • Ingibjörg Benediktsdóttir aðalmaður
  • Birkir Freyr Stefánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Elvar Árni Lund sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Líney Gylfadóttir Ritari
Fundargerð ritaði: Líney Gylfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá

1.Krubbur hugmyndahraðhlaup

Málsnúmer 202411024Vakta málsnúmer

Á 492. fundi byggðarráðs var eftirfarandi m.a. bókað:
Ráðið vísar hugmyndum um kennifyrirbæri til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar hugmyndum um kennifyrirbæri til vinnu við fjárhagsáætlun 2026.

2.Ósk um breytingu deiliskipulags heilbrigðisstofnana á Húsavík

Málsnúmer 202503004Vakta málsnúmer

Nú er grenndarkynningu deiliskipulags heilbrigðisstofnana á Húsavík lokið. Breytingin felur í sér stækkun lóðar Auðbrekku 2 um 504 m² á kostnað Vallholtsvegar 15-17. Ennfremur er byggingarreitur lóðarinnar að Auðbrekku 2 stækkaður. Engar athugasemdir bárust innan tilskilins frests við grenndarkynninguna, að undanskilinni ábendingu um rangt götuheiti frá Helenu Eydísi Ingólfsdóttur.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt eins og hún var kynnt. Skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa gildistöku skipulagsbreytingarinnar.

3.Hulduhóll - götuhönnun

Málsnúmer 202504083Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggja tillögur að gatnahönnun og hæðarsetningum lóða við Hulduhól, nýja götu á Húsavík.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir skipulags- og framkvæmdaráði tillögur að gatnahönnun fyrir Hulduhól.

4.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2025

Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer

Á 493. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Byggðarráð vísar lið nr. 3 í fundargerð til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar úrbótum á tjaldsvæði Raufarhafnar til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2026.

5.Tjaldsvæðið á Raufarhöfn - leigusamningur 2025 - 2026

Málsnúmer 202503009Vakta málsnúmer

Erindi frá AG verk ehf., rekstraraðila tjaldsvæðisins á Raufarhöfn.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur undir athugasemdir A.G. verks ehf. um slæmt ástand þjónustuhúss og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að bjóða þeim endurskoðaðan samning til eins árs þar sem tekið verður tillit til þess.

6.Erindi vegna refaveiða

Málsnúmer 202504084Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Gunnari Páli Ólasyni, Efri-Hólum í Núpasveit, vegna refaveiða.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að semja við eigendur Efri-Hóla um veiðar í þeirra landi.

Eysteinn Heiðar Kristjánsson situr hjá.

7.Erindi vegna samnings um göngustíg yfir lóð Gb5 og tilheyrandi gróðursvæði

Málsnúmer 202504087Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Þorgeiri Birni Hlöðverssyni vegna samnings um göngustíg yfir lóð Gb5 og tilheyrandi gróðursvæði.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ræða við Þorgeir vegna erindisins.

8.Staða úrgangsmála hjá sveitarfélögum

Málsnúmer 202504088Vakta málsnúmer

Umhverfis- og innviðateymi Sambandsins sendi nýlega út könnun til að kanna stöðu úrgangsmála hjá sveitarfélögunum og liggja niðurstöðurnar nú fyrir.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:00.