Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings
Dagskrá
1.Ársreikningur Hafnasjóðs Norðurþings 2024
Málsnúmer 202412071Vakta málsnúmer
Fyrir hafnastjórn liggur ársreikningur Hafnasjóðs Norðurþings 2024 ásamt drögum að ársskýrslu Hafnasjóðs vegna ársins 2024.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings samþykkir fyrirliggjandi ársreikning fyrir árið 2024 og vísar honum til staðfestingar í sveitarstjórn.
2.Uppbygging hafnaraðstöðu í tengslum við frekari atvinnuuppbyggingu á iðnaðarsvæðinu á Bakka
Málsnúmer 202502055Vakta málsnúmer
Til umræðu í stjórn Hafnasjóðs er framtíðarskipulag hafnarmannvirkja í tengslum við aðalskipulagsvinnu Norðurþings.
Lagt fram til kynningar.
3.Aðalskipulag Norðurþings 2025-2045
Málsnúmer 202305040Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur að fara yfir mál tengd skipulagsmálum á höfnum Norðurþings sem koma að aðalskipulagi Norðurþings 2025-2045.
Stjórn Hafnarsjóðs leggur áherslu á að athafnarsvæði Húsavíkurhafnar í nýju aðalskipulagi verði afmarkað norður fyrir Forvaða sem er syðst í Bakkakrók, vegna áforma um frekari uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Í núverandi vinnslutillögu er hverfisvernd afmörkuð á þessu svæði.
Ráðið vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Ráðið vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
4.Útboð á dráttarbát fyrir Hafnasjóð Norðurþings
Málsnúmer 202309050Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur til upplýsinga staða vegna dráttarbáts á Húsavík.
Einnig er samningur um leigu á Sleipni vegna sumarsins 2025 undir þessum lið.
Einnig er samningur um leigu á Sleipni vegna sumarsins 2025 undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að undirrita samning um leigu á dráttarbátnum Sleipni frá Hafnarsamlagi Norðurlands.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að undirrita samning um leigu á dráttarbátnum Sleipni frá Hafnarsamlagi Norðurlands.
5.Ýmis mál vegna rekstrar og fjárfestingar
Málsnúmer 202309051Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja mál frá rekstrarstjóra hafna vegna reksturs og fjárfestinga,
Lagt fram til kynningar.
6.Fundargerðir 2025
Málsnúmer 202502006Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands, fundur nr. 470 frá 19. febrúar sl. og fundur 471. frá 28. mars sl.
Einnig liggur fyrir aðalfundargerð og endurskoðaðar samþykktir Cruise Iceland frá fundi 30. apríl sl.
Einnig liggur fyrir aðalfundargerð og endurskoðaðar samþykktir Cruise Iceland frá fundi 30. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 16:10.