Byggðarráð samþykkti á fundi sínum í gær að ráða Berg Elías Ágústsson í starf sveitarstjóra til
næstu fjögurra ára. Elís Bergur Elías Ágústsson var á síðasta kjörtímabili bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæjar. Bergur er 43 ára að aldri, fæddur og uppalinn Vestmannaeyingur og menntaður í hagfræði frá
Sjávarútvegsháskólanum í Tromsö í Noregi. Hann hefur gegnt margvíslegum stjórnundarstörfum í atvinnulífi hér
á landi, m.a. sem rekstrarstjóri og síðar framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. – Dvergasteins, framkvæmdastjóri
fisk-vinnslufyrirtækjanna NASCO og Norðuróss á Blönduósi. Árið 2003 tók Bergur Elías við starfi bæjarstjóra í
Vestmannaeyjum og gegndi því til loka kjörtímabils í ár.