Fara í efni

Félagsstarf 60+ á Kópaskeri og Raufarhöfn hefst í september

Félagsstarf 60+ á Kópaskeri og Raufarhöfn mun hefja starfsemi í september.

Umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra á Kópaskeri og Raufarhöfn verður Kolbrún Valbergsdóttir. 

Kolbrún er rithöfundur með langa reynslu úr tæknigeiranum og fjölbreyttan bakgrunn í miðlun, skipulagi og samskiptum. Hún tekur nú við starfi sem snýr að samfélags- og tengslavinnu fyrir íbúa 60 ára og eldri á austursvæði Norðurþings. Starfsemin nefnist Opna stofan. Þar vill hún leggja sitt af mörkum til að efla virkni, samtal og þátttöku, og skapa vettvang þar sem fólk getur komið saman, deilt reynslu og fengið upplýsingar og stuðning eftir þörfum.

Nánari upplýsingar um starfsemina verður auglýst síðar í sumar.

Dagskrá Opnu stofunna má sjá hér með því að smella á tengililinn.

Kópasker - Dagskrá

Raufarhöfn - Dagskrá