Stofnfundur samstarfsverkefnis um bætta nýtingu
orkuauðlinda og nýsköpun á Norðausturlandi verður
haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fimmtudaginn
9. júní næstkomandi.
Í sumar bryddar Ferðafélagið Norðurslóð upp á nýju gönguverkefni á félagssvæði sínu, en það er raðganga upp með Jökulsárgljúfrum að austan. Gengið verður í fjórum áföngum frá Landsárgili upp að Dettifossi, fyrstu tveir áfangarnir í sumar og seinni tveir sumarið 2017.
vennahlaupið fer fram laugardaginn 4. júní. Eins og undanfarin ár verður hlaupið á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn ásamt yfir 100 öðrum stöðum hérlendis og erlendis. Hreyfing er lykillinn að góðri heilsu og nærir líkama og sál.
Sveitarstjórn Norðurþings samþykkt á fundi sínum þann 17. maí s.l. að veita framkvæmdaleyfi til Landsnets hf vegna Þeistareykjalínu 1 innan sveitarfélagamarka Norðurþings.
"Vegna veðurs" verður því miður að aflýsa öllum viðburðum tengdum skíðagöngu í Hreyfivikunni. Veðurguðirnir virðast ætla að leika við okkur þannig að erfitt verður að eiga við snjóinn í hitanum :-)
Hreyfivika UMFÍ er árleg lýðheilsuherferð og hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka þátt í hreyfingu og íþróttum. UMFÍ vill að allir landsmenn finni sína uppáhalds hreyfingu. #minhreyfing. Börn eiga að hreyfa sig að lágmarki 60 mínútur daglega og fullorðnir í 30 mínútur.