Borinn Jötunn
Borinn Jötunn er kominn til Húsavíkur. Jötunn hefur verið við boranir á Azoreyjum og er nokkur fjöldi
Húsvíkinga í áhöfn borsins. Borinn fer nú í það verkefni að bora 4 rannsóknarholur á háhitasvæðum í
Þingeyjarsýslum, vegna álvers við Bakka. Eftir boranir sumarsins er reiknað með að búið verði að afla um 40% af þeirri gufu sem þarf
vegna fyrri áfanga álvers við Bakka, en áætluð gangsetning þess er á miðju ári 2012.
12.04.2007
Tilkynningar