Gjaldfrítt í sund fyrir 16 ára og yngri.
Á fundi fjölskyldu- og þjónusturáðs Norðurþings þann 25. apríl 2007 var samþykkt að gjaldfrítt
verði í sundlaugar sveitarfélagsins á Húsavík og Raufarhöfn, fyrir 16 ára og yngri. Hingað til hefur einungis verið gjaldfrítt fyrir
íbúa sveitarfélagsins 16 ára og yngri en hér með verður gjaldfrítt fyrir alla einstaklinga á þeim aldri.
27.04.2007
Tilkynningar