Hrútadagurinn á Raufarhöfn
Hrútadagurinn á Raufarhöfn verður nú haldinn í þriðja sinn laugardaginn 6. október næstkomandi
í Faxahöllinni á Raufarhöfn. Þar verða til sölu hrútar frá um 20 bæjum úr Öxarfirði, Sléttu, Þistilfirði og
Langanesi. Um er að ræða 300 Norður-Þingeysk vöðvabúnt, en yfirdýralæknisembættið hefur gefið út 156 leyfi af þessu
svæði. Salan hefst kl. 12:00. Yfir daginn verða ullarvörur af svæðinu til sýnis og sölu ásamt öðrum hagnýtum vörum fyrir
sauðfjárrækt. Einnig er fyrirhuguð Íslandsmeistarakeppni í kjötsúpugerð. Um kvöldið verður hagyrðingakeppni og dansleikur á
Hóteli Norðurljósum. Hrútadagurinn hefur mælst afar vel fyrir meðal fólks sem hefur sótt hann.
28.09.2007
Tilkynningar