Fréttatilkynning frá Alcoa Corporation, 1. mars 2006
Bandaríska fyrirtækið Alcoa Corp. og ríkisstjórn Íslands hafa undirritað samkomulag um að hefja ítarlega könnun á
hagkvæmni þess að reisa nýtt, 250.000 tonna álver á Bakka við Húsavík. Verði af byggingu þess mun álverið nota rafmagn sem
að mestu verður framleitt með vistvænni jarðvarmaorku. Verði ákveðið að reisa nýtt álver á Norðurlandi er fyrstu framkvæmda
á svæðinu ekki að vænta fyrr en árið 2010.
01.03.2006
Tilkynningar