Námskeið í að takast á við breytingar.
Vegna þeirra breytinga sem standa yfir á stjórn- og starfaskipulagi Húsavíkurbæjar var ákveðið að bjóða
starfsfólki upp á námskeið í að takast á við breytingar, og var það haldið síðastliðinn mánudag í
Hvalasafninu á Húsavík. Námskeiðinu er ætlað að auðvelda starfsmönnum að nálgast breytingarnar með jákvæðum huga
og stuðla að aukinni samvinnu meðal starfsmanna og stjórnenda.
08.11.2005
Tilkynningar