Fimmtudaginn 2. september 2021 kom Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, færandi hendi á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings á Húsavík. Þar afhenti hún Kristjáni Þór Magnússyni, sveitarstjóra Norðurþings, forláta ljósmynd af Húsavík í veglegum ramma.
Rafmagnslaust verður í Kelduhverfi vestur frá aðveitustöð Lindarbrekku að Auðbjargarstöðum og Fjalli í dag fimmtudaginn 02.09.2021 frá kl 10:30 til kl 12:00 vegna bilunar í dreifistöð. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof