Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Áhrif kjarasamninga við K.Í.á fjárhag Norðurþings.
Málsnúmer 202503039Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð heldur umfjöllun sinni áfram.
Meirihluti fjölskylduráðs samþykkir eftirfarandi hagræðingartillögur og vísar þeim til byggðarráðs:
Frá skólaþjónustu 6.500.000 kr.
Frá Tónlistarskóla 10.700.000 kr.
Frá Grunnskóla Raufarhafnar 10.600.000 kr.
Frá Öxarfjarðarskóla 15.000.000 kr.
Ráðið samþykkir jafnframt að hagrætt verði í rekstri Grænuvalla um að lágmarki 17.000.000 kr. á ársgrundvelli í ljósi fækkunar nemenda.
Einnig að hagrætt verði í rekstri Borgarhólsskóla um að lágmarki 28.000.000 kr. á ársgrundvelli með eftirfarandi aðgerðum:
-Breytt fyrirkomulag sérkennslu
-Tilfallandi forföll kennara í 6. - 10. bekk verði ekki leyst nema í undantekningartilvikum
Eftirfarandi aðgerðir eiga við alla grunnskóla í Norðurþingi:
-Föst kennsluyfirvinna verði ekki heimil
-Hlutfall sérkennslu verði að hámarki 20% af kennslustundum viðmiðunarstundarskrár
Samtals hagræðing á velferðarsviði á ársgrundvelli er því 87.800.000 kr.
Ísak Már Aðalsteinsson, fulltrúi S-lista, óskar bókað:
Undirritaður vill koma á framfæri áhyggjum af þeim áhrifum sem fyrirhugaðar hagræðingartillögur hafa á þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Mikilvægt er að hlúa að menntakerfinu og þjónustu við barnafjölskyldur án skerðinga á þjónustu.
Halldór Jón Gíslason, fulltrúi V-lista og óháðra, situr hjá.

2.Þátttaka í Evrópskri samgönguviku
Málsnúmer 202505046Vakta málsnúmer
Evrópsk Samgönguvika er haldin dagana 16.-22. september ár hvert og hafa borgir, bæir, fyrirtæki og félagasamtök á Íslandi tekið þátt í átakinu frá árinu 2002. Markmið vikunnar er að kynna fyrir íbúum í þéttbýli fjölbreytta samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfið.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra á velferðarsviði að skoða möguleika á þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu.
3.Félag eldri borgara á Húsavík og nágrenni
Málsnúmer 202105039Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur til kynningar ársskýrsla og ársreikningur Félags eldri borgara á Húsavík og í nágrenni.
Fjölskylduráð þakkar Fanneyju og Regínu fyrir komuna á fundinn og góða yfirferð á starfsemi félagsins ásamt kynningu á ársreikningi.
4.Frístundastyrkur eldri borgara í Norðurþingi
Málsnúmer 202409014Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur minnisblað félagsmálastjóra um frístundastyrk eldri borgara.
Fjölskylduráð sér sér ekki fært að bjóða upp á frístundastyrk fyrir eldri borgara árið 2025 en mun taka málið til skoðunar við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2026.
5.Félag eldri borgara Raufarhöfn, Samningar, ársskýrslur ofl.
Málsnúmer 202110106Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur til kynningar ársskýrsla og ársreikningur 2024 Félags eldri borgara á Raufarhöfn
Fjölskylduráð þakkar Kristjönu fyrir komuna á fundinn og góða yfirferð á starfsemi félagsins ásamt kynningu á ársreikningi.
Fundi slitið - kl. 10:20.
Kristjana Bergsdóttir frá Félagi eldri borgara á Raufarhöfn sat fundinn (í fjarfundi) undir lið 5.
Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri, sat fundinn undir lið 1. Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir liðum 3-5.
Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir sat fundinn í fjarfundi.