Umhverfisátak Norðurþings og Heilbrigðiseftirlits 2007
Þátttakendum í hreinsunardegi laugardaginn 19. maí er þökkuð þátttakan. Hreinsunarátak í
Norðurþingi heldur áfram.
Á næstu vikum mun sveitarfélagið verða með vörubíla á ferðinni við að fjarlægja garðaúrgang og annað rusl af
lóðarmörkum. Þeir sem vilja losna við stærri hluti utan/innan lóða á Húsavík/Reykjahverfi er bent á að setja sig
í samband við verkstjóra þjónustustöðvar í síma 899 3418 sem mun leggja mat á hvort viðkomandi hlutur verður fjarlægður
á kostnað sveitarfélagsins.
Sérstaklega er ætlunin að hreinsa til á geymslusvæðum sunnan sláturhúss Norðlenska og í Tröllakoti.
Þeir sem eiga þar hluti eru beðnir um að merkja sér þá með skýrum hætti fyrir 31. maí n.k. þar sem fram kemur nafn eiganda og
símanúmer og vera í sambandi við verkstjóra þjónustustöðvar varðandi áframhaldandi geymslu viðkomandi hlutar. Gera má
ráð fyrir að þeim hlutum sem ekki er gerð grein fyrir og standa utan lóða verði fargað.
23.05.2007
Tilkynningar