Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.RECET verkefnið; aðgerðaráætlun fyrir orkuskipti á NE
Málsnúmer 202409029Vakta málsnúmer
Síðastliðið haust tók Norðurþing þátt í RECET vinnustofu Eims og SSNE til þess að móta orkuskiptaaðgerðir sveitarfélagið.
Upp úr þeirri vinnu er nú búið að draga saman kjarnaatriðin og setja upp sem drög að aðgerðum sem hægt er að innleiða og hrinda í framkvæmd.
Upp úr þeirri vinnu er nú búið að draga saman kjarnaatriðin og setja upp sem drög að aðgerðum sem hægt er að innleiða og hrinda í framkvæmd.
Lagt fram til kynningar.
2.Ósk um umsögn um umhverfismatsskýrslu vegna kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034
Málsnúmer 202504070Vakta málsnúmer
Skipulagsstofnun óskar umsagnar Norðurþings vegna umhverfismatsskýrslu vegna Kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034. Skýrslan er til kynningar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Kynningartími er frá 9. apríl til 31. maí 2025.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að gera drög að umsögn.
3.Niðurrif verksmiðju og mjölhúss á Raufarhöfn
Málsnúmer 202505052Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir skipulags- og framkvæmdaráði tilboð frá Hringrás um niðurrif verksmiðju- og mjölhúss á Raufarhöfn.
Forsaga þessa máls er talsvert löng en árið 2006 var tekin ákvörðun af eigendum SR-mjöls að hætta alfarið starfsemi Síldarverksmiðju ríkisins á Raufarhöfn. Norðurþing eignaðist fasteignirnar í upphafi árs 2013. Eftir nær 20 ár hefur ekkert þokast varðandi nýtingu bygginga á SR-reitnum svokallaða á Raufarhöfn.
Byggingarnar eru mjög illa farnar og mikil fokhætta sem stafar af þeim enda þök ryðguð og víða lausar þakplötur. Mikið af ýmiskonar búnaði, tækjum og rusli hefur safnast fyrir, einkum í mjölskemmunni og er ástandið óviðunandi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hefur fengið tilboð frá Hringrás ehf. um niðurrif bygginganna, sem felur í sér að Hringrás sjái um að fjarlægja þök, brjóta niður veggi og keyra burtu brotajárni. Verkið taki u.þ.b. 2 vikur og verði gert sumarið 2025. Gólfplötur verði ekki fjarlægðar.

Skipulags- og framkvæmdaráð vísar málinu til umsagnar í hverfisráði Raufarhafnar.
Ráðið felur jafnframt sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að bjóða Einari E. Sigurðssyni til fundar með vísun í tölvupóst hans dagsettan 18. maí síðastliðinn. Horft er til ákvarðanatöku fyrir miðjan júní næstkomandi.

4.Erindi frá hjóladeild Völsungs vegna hjóla- og göngustíga á Húsavík
Málsnúmer 202505051Vakta málsnúmer
Erindi frá hjóladeild Völsungs vegna hjóla- og göngustíga á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Völsungi erindið.
Á vegum skipulags- og umhverfissviðs er þegar hafin vinna við að skilgreina göngu- og hjólaleiðir á Húsavík og forgagnsraða leiðum m.t.t. viðhalds og umhirðu í samráði við hagaðila. Sviðsstjóri mun hafa samband við hjóladeild Völsungs vegna þess.

5.Útikennslusvæðið Holt í Skógargerðisdal
Málsnúmer 202505050Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Leikskólanum Grænuvöllum vegna útikennslusvæðis í Holti í Skógargerðisdal.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið og vekur athygli á því að framkvæmdir eru yfirstandandi. Svæðið er hluti af skrúðgarðinum og verður áfram skilgreint sem útivistarsvæði fyrir almenning.
6.Kvíabekkur 2025
Málsnúmer 202505054Vakta málsnúmer
Miðjan - hæfing óskar eftir aðstöðu í Kvíabekk til að starfrækja kaffihús í sumar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að heimila Miðjunni hæfingu að nota Kvíabekk sem kaffihús sumarið 2025.
7.Breyting deiliskipulags suðurhafnarsvæðis
Málsnúmer 202501027Vakta málsnúmer
Í kjölfar yfirferðar Skipulagsstofnunar á breytingu deiliskipulags Suðurhafnarsvæðis Húsavíkur óskaði stofnunin eftir að gerð verði grein fyrir mögulegum umhverfisáhrifum breytingarinnar í greinargerð skipulagsins. Fyrir liggur tillaga skipulagsráðgjafa að leiðréttingunni.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur tillögu skipulagsráðgjafa að úrlausn fullnægjandi og samþykkir breytinguna. Ráðið lítur á breytingu uppdráttar sem einfalda leiðréttingu og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa skipulagbreytinguna með leiðréttingunni.
8.Erindi vegna samnings um göngustíg yfir lóðina Garðarsbraut 5 og tilheyrandi gróðursvæði
Málsnúmer 202504087Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur framhaldserindi vegna samnings um göngustíg yfir lóðina Garðarsbraut 5 og tilheyrandi gróðursvæði.
Skipulags- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við að gróður innan lóðar Garðarsbrautar 5 verði fjarlægður.
Fundi slitið - kl. 14:30.
Soffía Gísladóttir sat fundinn í fjarfundi.