Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir starfsmanni í félagsstarf aldraðra
Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi starfsmanni í félagsstarf aldraðra.
Umsóknarfrestur: 24.02.2026
Um er að ræða 50% starf til afleysingar fram að sumrinu 2027. Vinnutími er 13:00-16:00 3 daga í viku og 11:00-16:00 tvo daga í viku.
Starfsmaðurinn vinnur að öflugu félagsstarfi í samstarfi við Félag eldri borgara á Húsavík og mun starfið fara fram í húsnæði félagsins, Hlyn á Húsavík.
Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf 60 ára og eldri. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja fumkvæði og hæfileika hvers og eins.
Óskað er eftir metnaðarfullum starfsmanni sem vill stuðla að faglegu starfi með gæði og kærleika að leiðarljósi. Starfið er opið, skemmtilegt og býður upp á að innleiða nýjungar.
Helstu verkefni umsjónarmanns:
- Félagsstarf og umsjón með daglegri starfsemi
- Vikulegir samráðsfundir með félagsþjónustu
- Skipulagning starfsins í samráði við eldri borgara
- Skipuleggja og halda utan um námskeið
- Samskipti og samstarf
- Umsjón með hádegisverði, t.d halda utan um skráningar, pantanir og frágangur
Menntun og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum, virðing og samvinna
- Áhugi á að vinna með fólki
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á frístunda og félagsstarfi
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsins
- Kunnátta í handverki eða föndri er kostur
- Góð íslensku kunnátta
Starfshlutfall er 50% og er tímabundin afleysing vegna fæðingarorlofs, fram að sumri 2027. Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan apríl 2026.