Í vikunni mun Orkuveita Húsavík halda áfram að gera við bilun sem kom upp í heitaveitu í byrjun apríl mánaðar. Um er að ræða sömu lokun og var í byrjun mánaðarins og má því reikna með að heitt fari af á sama svæði og áður, það er ofan Þverholts. Þrýstingur á heitu vatni gæti fallið eitthvað niður í þeim götum sem eru næst Þverholti. Ekki er komin nákvæm tímasetning á hvenær vatnið verður tekið af en reikna má með að það verði á miðvikudaginn.